Vígþór Sjafnar Zophoníasson er fjölhæfur skemmtikraftur og listamaður. Hann er það sem Ameríkanar kalla cross-over artist, og getur auðveldlega farið úr klassískum söng yfir í söngleiki, jafnt sem og annað listform. Um árabil bjó hann í Bandaríkjunum þar sem hann söng í aðalhlutverkum í bæði óperum og söngleikjum, en starfaði einnig sem leikari bæði á sviði og í sjónvarpi. Hér á landi hefur hann undanfarið verið mest í talsetningum teiknimynda en einnig leikið í nokkrum kvikmyndum.
Vígþór Sjafnar hefur tekið þátt í hundruðum uppfærslna á sviðsverkum en meðal helstu hlutverka má nefna; Almaviva Greifa í Rakaranum í Sevilla, Nornina í Hans og Grétu, Tamino í Töfraflautunni, Titilhlutverkið Albert Herring í Albert Herring, El Gallo í Fantasticks, Count Carl-Magnus í A little night music, Guido Contini í Nine, Ringmaster í Barnum, John Jasper í Mystery of Edwin Drood og Jean Valjean í Vesalingunum.
Vígþór Sjafnar hefur leikstýrt bæði hérlendis og erlendis, en einnig stjórnað hljómsveitum og kórum.