Ólafur Freyr Birkisson nam söng við Söngskólann í Reykjavik og Listaháskóla Íslands. Hann hefur komið víða fram. Af sviði má helst nefna óperurnar „Ekkert er sorglegra en manneskjan“ og „Brím“ eftir Friðrik Margrétar-Guðmundsson og Adolf Smára Unnarsson, „Mærþöll“ eftir Þórunni Guðmundsdóttur og „Raven‘s Kiss“ eftir Evan Fein og Þorvald Davíð Kristjánsson. Ólafur hefur einnig komið fram sem einsöngvari með Kór Langholtskirkju, þ.á.m. í Requiem eftir Fauré og í Jóhannesarpassíu J.S. Bach undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar. Þá hefur Ólafur komið fram sem einsöngvari á tónleikum t.a.m. hjá Sinfóníusveit áhugamanna, Kammerkór Seltjarnarneskirkju, Háskólakórnum og Ungfóníunni. Þá var Ólafur flytjandi á tónlistarhátíðinni Seiglu 2022 og 2023. Vorið 2023 var Ólafur sigurvegari í keppninni Ungir einleikarar.