inbound7676419057066561386.jpg
María Konráðsdóttir

Ferilskrá

María Konráðsdóttir byrjaði ung að spila á klarinett og lauk burtfararprófi á klarinett frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 2007 undir handleiðslu Kjartans Óskarssonar. Ári síðar byrjaði hún í söngnámi þar sem kennari hennar var Dr. Þórunn Guðmundsdóttir en að loknu tveggja ára námi við skólann lá leiðin til Berlínar í framhaldsnám. Sumarið 2015 lauk hún bakkalárgráðu frá Listaháskólanum í Berlín þar sem kennarar hennar voru m.a. Carola Höhn, Hendrik Heilmann og Eric Schneider. Hún útskrifaðist með meistaragráðu í ljóða og óratoríusöng frá sama skóla vorið 2018.

 

 

 

María hefur komið fram á fjölda tónleika bæði hér á landi og í Þýskalandi og unnið til alþjóðlegra verðlauna. Hún hefur sungið í tónleikaröðum á borð við Klassík í Salnum og Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni og á hátíðum eins og Óperudagar, Reykjavík Early Festival, Myrkir Músíkdagar og Sumartónleikar í Skálholti en hún söng titilhlutverkið í óperunni Dido and Aeneas eftir Purcell sem sett var upp á hátíðinni árið 2025. 

 

 

 

Haustið 2024 kom hún fram sem einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit Íslands á barokktónleikum undir stjórn Peter Hanson. Sama ár söng María með sellóleikaranum Yo-yo Ma á Arctic Circle ráðstefnunni þar sem flutt var tónlist eftir Viktor Orra Árnason. Nýlega söng hún hlutverk Florestine í óperunni Hliðarspor eftir Þórunni Guðmundsdóttur sem sett var upp í Gamla bíó.

 

 

 

María hefur einnig sungið með sönghópnum Cantoque Ensamble og er meðlimur í Yrkju, nýstofnuðum kvennasönghóp sem flutti Næturvöku Rachmaninoff ásamt karlakórnum Kyrju í nóvember 2025.

 

 

 

Meðfram söngnum stýrir María Barnakór Seltjarnarneskirkju og er klarinettukennari við Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar.