IMG_8521.jpeg
Kristín E Mantyla

Ferilskrá

Kristín Einarsdóttir Mantyla, sópransöngkona, ólst upp í kórastarfi Langholtskirkju og söng með öllum kórum kirkjunnar. Með Graduale Nobili-kórnum söng hún inn á plötu Bjarkar Guðmundsdóttur, Biophilia, og tók í kjölfarið þátt í tveggja ára tónleikaferðalagi um heiminn. Hún útskrifaðist með burtfararpróf úr Söngskóla Reykjavíkur hjá Hörpu Harðardóttur og hóf í kjölfarið söngnám við Tónlistarháskólann í Leipzig.

 

Kristín lauk Meisterklasse-gráðu með hæstu einkunn árið 2024 og starfaði samhliða sem aðstoðarkennari hjá prófessor Brigitte Wohlfarth á árunum 2022–2024.

 

Kristín hefur sungið við fjölda óperuhúsa í Þýskalandi, þar á meðal í Leipzig, Gera, Altenburg, Brandenburg og Nordhausen, auk þess að taka þátt í uppsetningum Szene 12 í Dresden og Schlossfestspiele Ettlingen. Árið 2025 söng hún hlutverk Marie í Wozzeck eftir Alban Berg við óperuhúsin í Würzburg og Dessau og aðalhlutverkið í nútímaóperunni Svadba við óperuhúsið í Bonn við góðar undirtektir. Hún söng Elle í uppsetningu Mannsraddarinnar á Seiglu 2025 og syngur um þessar mundir hlutverk Judith í Blaubarts Burg eftir Bartók í Leipzig.

 

Hún hefur einnig komið fram sem einsöngvari í Berliner Konzerthaus, við óperuna í Leipzig, Bachfest Leipzig, Rheinsberg Schlosstheater, Íslensku óperuna og í Hörpu tónlistarhúsi.

 

Kristín hlaut árið 2016 verðlaunin Junge Stimmen Leipzig og hefur hlotið styrki frá Richard Wagner-félaginu í Leipzig og Yehudi Menuhin Live Music Now – Leipzig.