
Hanna Ágústa lauk bakkalárprófi frá Tónlistarháskólanum í Leipzig árið 2022 þar sem hún nam söng undir leiðsögn Prof. Carola Guber. Hanna stundaði áður söngnám við Söngskólann í Reykjavík og lauk þaðan framhaldsprófi undir leiðsögn Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur. Hún söng hlutverk Papagenu í Töfraflautunni í Theater Rudolstadt sumarið 2021 undir stjórn Oliver Weder í leikstjórn Naima Märker og var auk þess einn sigurvegara keppninnar Ungra Einleikara á vegum LHÍ og SÍ sama ár og söng einsöng á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands í maí 2022. Hanna fór með hlutverk Óla Lokbrár í uppsetningu Kammeróperunnar á Hans og Grétu í Tjarnarbíói í desember 2023 og var einsöngvari á Reykholtshátíð 2023 og 2024. Hún hefur reynslu af leikstjórn og leikritaskrifum, en hún fór t.a.m í starfsnám í óperuleikstjórn hjá Susanne Knapp vorið 2022 og stundar nú nám á Sviðshöfundabraut í Listaháskóla Íslands. Vorið 2016 hlaut Hanna styrk úr Minningarsjóði Vilhjálms Vilhjálmssonar til náms í Söngskólanum og í febrúar 2021 hlaut Hanna styrk úr minningarsjóði Heimis Klemenzsonar. Hanna var sigurvegari söngkeppninnar Vox Domini í byrjun árs 2024 og hlaut þar einnig titillinn Rödd Ársins. Hanna var listamanneskja Borgarbyggðar 2024.