
Erla Dóra Vogler mezzósópran lærði söng við Tónlistarskóla Fljótsdalshéraðs og síðar Tónlistarskóla Reykjavíkur. Hún lauk diplómagráðu frá óperudeild Universität für Musik und darstellende Kunst í Vínarborg 2009 og var eitt ár við ljóða- og óratóríudeild sama skóla. Helstu kennarar hennar hafa verið Keith Reed, Þórunn Guðmundsdóttir, Bernhard Adler, Marjana Burgstaller-Lipovšek, Uwe Theimer, Rotraud Hansmann og Hanna Dóra Sturludóttir.
Erla Dóra hefur sungið í ýmsum tónleikaröðum, s.s. Lofað öllu fögru, tónleikaröð Bláu Kirkjunnar sem og KÍTÓN, Klassík í Vatnsmýrinni, Klassík í Bergi, Sumartónleikum LSÓ og Sönghátíð í Hafnarborg. Hún hefur komið fram sem einsöngvari með sinfóníuhljómsveitum, einleikshljóðfærum, kammerhópum og kórum t.d. í Hofi, Salnum, Hafnarborg og Tónlistarmiðstöð Austurlands. Þá hefur hún frumflutt verk nútímatónskálda og tekið þátt í nýstárlegum uppsetningum og margvíslegri tilraunastarfsemi. Frá því hún var barn hefur hún leikið með ýmsum áhugaleikhópum s.s. Leikfélagi Fljótsdalshéraðs, Leikfélaginu Hugleik og Leikfélagi Háskóla Ísland, og leggur mikla áherslu á túlkun og leikgleði þegar hún syngur.
Erla hefur staðið að útgáfu tveggja geisladiska: Víravirki – íslensk söngljóð, sem hún gaf út árið 2010 með styrk frá einkaháskóla Anton Bruckners í Linz ásamt Doris Lindner, austurrískum píanóleikara, og Jórunn Viðar – Söngvar sem kom út 2019 (á 100 ára afmæli Jórunnar) og var samstarfsverkefni hennar og Evu Þyri Hilmarsdóttur píanóleikara. Diskurinn var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna sem Plata ársins.
Erla Dóra kemur einnig fram sem dægurlagasöngkona, t.d. með hljómsveitinni Dægurlagadraumum sem skemmtu Austfirðingum um árabil og nú með Tríói Akureyrar.
Þá hefur Erla annast verkefnastjórn fjölda menningarverkefna – bæði á eigin vegum og annarra.
Af nýlegum verkefnum má nefna tónleika með lögum Edith Piaf í Hofi og Messe for en såret Jord eftir Ketil Bjørnstad og Erik Hillestad með kvennakórnum Emblunum, víólu og rokkhljómsveit undir stjórn Roars Kvam, Stabat Mater eftir Pergolesi í Fella- og hólakirkju, tónleikana Landablöndu (Þjóðlög frá þrettán löndum) með kvartettinum Norðangarra og Októberfest í samstarfi við handverksbrugghúsin á Norðurlandi eystra með Tríói Akureyrar.
Erla Dóra er hluti af Tríói Akureyrar, Norðangarra, Tríói Túnfífli, Dægurlagadraumum og er ein af stofnendum sviðslistahópsins Hnoðra í norðri sem hlaut hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar vorið 2023.
Glugginn af plötunni Jórunn Viðar – Söngvar. Erla Dóra Vogler og Eva Þyri Hilmarsdóttir
Hvítur hestur í tunglskini af plötunni Jórunn Viðar – Söngvar. Erla Dóra Vogler og Eva Þyri Hilmarsdóttir
Lili Marlene upptaka hjá N4. Tríó Akureyrar (Erla Dóra Vogler, Valmar Väljaots og Jón Þorsteinn Reynisson) og Ella Vala Ármannsdóttir
Heut´Abend lad´ich mir die liebe ein upptaka hjá N4. Tríó Akureyrar (Erla Dóra Vogler, Valmar Väljaots og Jón Þorsteinn Reynisson) og Ella Vala Ármannsdóttir
Oft spurði ég mömmu í Hofi á Akureyrarvöku. Tríó Akureyrar
Jólasnjór Jólin með Tríói Akureyrar, jólatónleikar N4 2021. Tríó Akureyrar og Pétur Ingólfsson