DSC00888.jpg
Andri Björn Róbertsson

Ferilskrá

Andri Björn Róbertsson, bassbarítón, er einn af fremstu söngvurum Íslendinga af yngri kynslóðinni og er afar eftirsóttur á bæði tónleikapallinum og óperusviðinu.

Andri söng nýlega hjá Opera North hlutverk Sprecher í Töfraflautunni og Theseus í A Midsummer Night’s Dream eftir Britten, auk þess að covera hlutverk Sarastro í Töfraflautunni. Hann mun svo snúa aftur til Glyndebourne Festival Opera til að covera titilhlutverkið í Saul eftir Handel.

Á síðasta leikári debúteraði Andri við Opera North í Leeds í nýrri Purcell uppfærslu Sir David Pountney, Masque of Might sem Nebulous/Activist/Wolf og söng í fyrsta sinn með Orchestre de Paris, Witness 3 og Madman, í Lessons in Love and Violence eftir Sir George Benjamin.

Önnur hlutverk eru m.a. Leporello í Don Giovanni (Kilden Opera), Figaro í Le Nozze di Figaro (Íslenska Óperan, Opernhaus Zürich), Don Basilio í Rakaranum frá Sevilla (Nevill Holt Opera, ENO), Witness 3/Madman í Lessons in Love and Violence eftir Sir George Benjamin (ROH Covent Garden, Staatsoper Hamburg, Opera Lyon, Dutch National Opera, Orchestre de Paris), Angelotti í Tosca (ENO, Llangollen Eisteddfod), Ceprano í Rigoletto (ENO), Krishna í Satyagraha eftir Philip Glass (ENO) Quince og Theseus í A Midsummer Night’s Dream (Glyndebourne, ENO), Superintendent Budd í Albert Herring (The Grange Festival), Sprecher og Sarastro í Töfraflautunni (Opernhaus Zürich, West Green House Opera, Bath International Music Festival), Der König í Die Gänsemagd (Opernhaus Zürich), Brabantischer Edler í Lohengrin (Opernhaus Zürich), Fedja Dawidowitsch Pronin í Fälle eftir Oscar Strasnoy (Opernhaus Zürich), Priest/Pan/He í King Arthur eftir Purcell (Opernhaus Zürich), Bassi í Trauernacht eftir Bach (Festival d’Aix en Provence, Dutch National Opera, Bolshoi, Philharmonie de Paris), Craftsman í The Commission eftir Elspeth Brooke (ROH Covent Garden, Opera North, Aldeburgh Music), Barman/Hunter Gracchus/Policeman í Café Kafka eftir Francisco Coll (ROH Covent Garden, Opera North, Aldeburgh Music), Gremin í Onegin (Royal Academy Opera), Don Villotto í La vera costanza eftir Haydn (Royal Academy Opera), Herr Buff í Der Schauspieldirektor (Royal Academy Opera), Arthur/Officer 3/Voice of the cards í The Lighthouse eftir Peter Maxwell Davies (Royal Academy Opera), Voice 2 í The Soldier’s Return eftir Marcos Fernandez-Barrero (Opera Sunderland) og Fifth Jew í Salome (ENO, Bournemouth Symphony Orchestra).

Andri hefur unnið með stjórnendum á borð við Sir George Benjamin, Kent Nagano, Raphael Pichon, Steuart Bedford, Fabio Luisi, Laurence Cummings, Kirill Karabits, Alexandre Bloch, Karen Kamensek, Alexander Soddy, Harry Bicket, Cornelius Meister, Simone Young, Trevor Pinnock, Jonathan Bloxham, Patrick Lange, Oleg Caetani, Garry Walker, Constantin Trinks, Risto Joost og Dinis Sousa.

Hann hefur einnig unnið með leikstjórum á borð við John Copley, Sir David Pountney, Katie Mitchell, Jonathan Miller, Martin Duncan, Andreas Homoki, Tatjana Gürbaca og John Ramster.

Haustið 2021 kom út geislaplatan Thorsteinson & Schumann, gefin út af Fuga Libera, þar sem Andri, ásamt Ástríði Öldu Sigurðardóttur, flytur sjö sönglög eftir Árna Thorsteinson og Liederkreis op. 39 og Liederkreis op. 24 eftir Robert Schumann. Diskurinn fékk frábærar viðtökur gagnrýnenda og var útgáfunni var fagnað með tónleikum í Norðurljósum Hörpu á tónleikaröðinni ‘Heimssviðið’.

Andri voru veitt HSBC verðlaun Festival d’Aix en Provence árið 2014, var meðlimur í óperustúdíói Zürich Opera 2014-2015 og Harewood listamaður við English National Opera á árunum 2016-2018. 

Andri hefur sungið í fjölmörgum óratoríum, m.a. Jóhannesarpassíunni, Mattheusarpassíunni og kantötum eftir J.S. Bach, Messíasi, Saul, Samson og Israel in Egypt eftir Handel, Harmoniemesse, Nelsonmessunni og Sköpuninni eftir Haydn, Sálumessu og Krýningarmessu Mozarts, Elijah og Lauda Sion eftir Mendelssohn, Messu í C-dúr eftir Beethoven, Messa di Gloria eftir Puccini, Polipheme eftir Clérambault, Aquilon et Orithie eftir Rameau, Petite Messe Solennelle eftir Rossini, Serenade op 24 eftir Schönberg, kantötur eftir Telemann og L’enfant et les sortileges eftir Ravel. Meðal annarra tónleika má nefna hlutverk Cappadocian og Fimmta Gyðings í tónleikauppfærslu af Salome með Sinfóníuhljómsveitinni í Bournemouth og tónleikaröð með barokksveitinni Café Zimmermann í Marseille, La Roque d’Antheron og Aix en Provence. Á Íslandi hefur Andri m.a. komið fram sem einsöngvari með Kór Langholtskirkju, Mótettukórnum, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Barokkbandinu Brák.

Andra er einnig sérstaklega annt um ljóðasöngsformið og hefur sungið á Oxford Lieder Festival, og sungið á ljóðatónleikum víða, m.a. Wigmore Hall, Óperunni í Lille, Óperunni í Zürich, á tónlistarhátíðinni í Aix en Provence, Cadogan Hall, Sönghátíð í Hafnarborg, Salnum Kópavogi, í Hörpu, King’s Hall í Newcastle, The Sage tónlistarhúsinu og á Winchester Festival.

Andri sigraði í Mozart söngkeppninni í London, söng í undanúrslitum Queen Sonja söngkeppninnar í Ósló árið 2015 og Belvedere söngkeppninnar í Amsterdam 2013 og var tilfnefndur sem ‘Bjartasta vonin í klassískri tónlist’ á Íslensku tónlistarverðlaununum 2013 og sem ‘Söngur ársins´árið 2021 og 2022. Andri söng í kórum Langholtskirkju undir stjórn Jóns Stefánssonar og nam söng við Söngskólann í Reykjavík undir handleiðslu Ólafar Kolbrúnar Harðardóttur. Í Royal Academy of Music í London voru kennarar hans m.a. Mark Wildman og Jonathan Papp og hann nam einnig við National Opera Studio í London. Andri hefur tekið þátt í ýmsum meistaranámskeiðum, m.a. hjá Kiri Te Kanawa, José Carreras, Dalton Baldwin, Thomas Allen, Roger Vignoles og Angelika Kirchschlager, ásamt því að taka þátt í Solti Te Kanawa námskeiðinu á Ítalíu og Samling námskeiðinu í Bretlandi. Andri er ævinlega þakklátur Dame Kiri Te Kanawa og styrktarsjóði hennar fyrir ráðleggingar og fjárhagsstuðning. Andri er einnig þakklátur Behrens sjóðnum sem styrkti hann sem Harewood listamann.

Andri er prófessor í söng við Háskólann í Newcastle, Northumbria háskólann og Háskólann í Durham. Hann hefur einnig kennt meistaranámskeið við Söngskólann í Reykjavík, Listaháskóla Íslands og við Samling Academy.

Andri hefur verið meðstjórnandi og gjaldkeri Klassís síðan 2021 og situr í fagráði Sviðslistamiðstöðvar Íslands.

Hlekkir

www.keynoteartistmanagement.com