Lög Fagfélags klassískra söngvara á Íslandi
1. gr.
Félagið heitir: Fagfélag klassískra söngvara á Íslandi. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.
2. gr.
Tilgangur félagsins er
- Að sinna hlutverki sínu sem kveðið er á um í 1. gr. a. laga um Sviðslistir nr. 165/2019. Félagið skal tilnefna fulltrúa sem og varamann í Þjóðleikhúsráð til fimm ára setu í senn.
- Að efla starfsvettvang klassískra söngvara á Íslandi og styrkja stöðu þeirra í hvívetna.
- Að stuðla að því að hið opinbera verji sem mestu fé til klassískrar söng- og óperulistar og hafa áhrif á það hvernig þeim fjármunum er ráðstafað og skipt.
- Að þrýsta á um að fagleg sjónarmið séu ráðandi og faglegir starfshættir viðhafðir á starfsvettvangi klassískra söngvara á Íslandi. Að kynna fagleg sjónarmið á opinberum vettvangi.
- Að vera vettvangur til að ræða hagsmunamál og réttindi klassískra söngvara á Íslandi.
- Að kynna félagsmenn.
3. gr.
Tilgangi sínum hyggst félagið meðal annars ná með því að halda úti heimasíðu og kynna félagsmenn og málefni félagsins. Félagið mun halda umræðu- og kynningarfundi og skila frá sér ályktunum um mikilvæg málefni söngvara.
4. gr.
Félagsmenn geta orðið þeir sem hafa lokið BMus gráðu eða sambærilegri gráðu frá viðurkenndum tónlistarháskóla.
Uppfylli umsækjandi ekki skilyrði um menntun en getur sýnt fram á töluverða starfsreynslu mun stjórn taka afstöðu til umsóknar hverju sinni.
5. gr.
Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. október ár hvert og skal boða til hans með minnst sjö daga fyrirvara með sannanlegum hætti. Aðalfundur er löglegur, sé rétt til hans boðað. Reikningsár félagsins er 01. september til 31. ágúst. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Reikningar
- Lagabreytingar
- Ákvörðun árgjalds
- Kosning stjórnar
- Önnur mál
6.gr.
Stjórn félagsins skal skipuð 5 félagsmönnum. Stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára í senn. Tveir skulu kosnir annaðhvert ár og þrír hin árin. Þá skal kjósa 2 varamenn sem einnig eru félagar. Varamenn skulu kosnir til tveggja ára í senn og ganga úr stjórn til skiptis. Stjórnarmeðlimum sem ljúka stjórnarsetu er heimilt að bjóða sig fram um leið og kosið er til nýrrar stjórnar.
Stjórnin skiptir með sér verkum. Meirihluta stjórnar þarf til að skuldbinda félagið. Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður boðar til funda.
6. gr. a. tímabundið ákvæði:
Á aðalfundi 1. október 2025 skal kjósa tvo stjórnarmenn og varamann til tveggja ára. Einnig skal kjósa þrjá stjórnarmenn og varamann til eins árs. Á aðalfundi 2026 skal kjósa þá þrjá stjórnarmenn og varamann sem kosnir voru til eins árs á aðalfundi 2025, til tveggja ára. Þá hefur breytingartillaga um stjórnarsetu tekið gildi að fullu. Skal þá gera breytingu á lögum og fella þetta tímabundna ákvæði 6. gr. a. úr lögum.
7. gr.
Stjórnarmenn skulu fá greitt fyrir fundarsetu á stjórnarfundum hjá BÍL, Bandalagi íslenskra listamanna og SAFAS, samráðsvettvangi fagfélaga sviðslistafólks í Sviðslistasambandi Íslands. Fyrir hvern fund skal greitt 15.000 kr. Upphæð skal endurskoðuð á aðalfundi.
8. gr.
Ákvörðun um árgjald skal tekin á aðalfundi.
9. gr.
Lögum félagsins má aðeins breyta á aðalfundi. Tillögur að lagabreytingum skulu sendar með aðalfundarboði. Lagabreytingar þurfa samþykki 2/3 greiddra atkvæða.
10. gr.
Félaginu verður ekki slitið nema 3/4 fulltrúa á aðalfundi greiði því atkvæði. Á fundinum yrði tekin ákvörðun um ráðstöfun skulda og eigna félagsins.
Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi Félags klassískra söngvara á Íslandi þann 4. mars 2018. Breytingar voru samþykktar á grein 2, 6 og 7 á aðalfundi Klassís 1. október 2025.